31.10.2014 | 10:23
Stórkostlega gallað kjánaprik
Hún er vond sú tilfinning þegar einhver sér óvart hluta af manni sem maður hefur eftir fremsta megni reynt að fela fyrir öðrum. Ég hef næstum misst af Herjólfi þrisvar (get eingöngu skrifað það á kjánaskap og kæruleysi) og hef einu sinni meira að segja tekist það. Klárlega ekki það versta sem ég hef gert, en samt eitthvað sem ég skammast mín smá fyrir. Ég hef hins vegar staðið úti á miðri umferðargötu, á háannartíma og gargað úr mér lifur og lungu og látið allra ljótustu orðin sem ég kunni falla á manninn sem ég elskaði, fyrir framan átta ára gamlan son minn. Ég týndi fimm ára syni mínum í Smáralindinni og fór eitt sinn á tjúttið í Reykjavík á meðan sami sonur, sem þá þriggja ára gamall, var að jafna sig eftir hálskirtlaaðgerð hjá frænku minni. Allt hlutir sem ég skammast mín verulega fyrir og hefði svo gjarnan vilja sleppa við að hafa gert... eða allavega verið til í að enginn hefði vitað af. Ef nú bara ég hefði verið skynsamari, betri eða ábyrgðarfyllri...
Það verður öllum á og það gera allir mistök. Með þeim orðum fyrirgaf yngsti sonur minn mér. Þegar okkur verður á og við gerum hluti sem við erum ekki stolt af eða hreint og beint skömmumst okkar fyrir, þá eru fyrstu viðbrögðin að reyna að fela það fyrir öðrum. Vona heitt og innilega að engin komist að þessu. Af hverju? Jú, af því að við hræðumst svo hrikalega hneykslun, fordæmingu og setningar eins og ...sko, svona gerir maður bara ekki.
Ég vil svo gjarnan vera álitin góð manneskja því ég tel mig í flestum tilfellum vera það. En ég geri mín glappaskot, ég geri mistök og mér verður á. Ég geri og segi stundum hluti sem vildi oft óska að ég hefði sleppt. Ég er hins vegar svo óendanlega heppin að eiga góða vini og fjölskyldu að sem minna mig stöðugt á hversu mikils virði ég sé þeim, þrátt fyrir kjánaskap og heimskupör. Nánast allir þeir sem ég vel að hafa í kringum mig, viðurkenna fúslega samskonar mannlega bresti og svipaðar vitleysur - jafnvel stundum eitthvað töluvert verra.
Guð blessi dásamlega vini og yndislega fjölskyldu, því svoleiðis orð gera það að verkum að ég get fyrirgefið sjálfri mér heimskupörin og hætt að brjóta mig niður fyrir kjánaskapinn, sleppt skömminni og fundið kjarkinn til vera ég sjálf. Það er nefnilega svo átakanlega sár tilfinning, að finnast maður vera valda öðrum vonbrigðum eða mistakast. Svo hrikalega vont að maður reynir eftir bestu getu að fela það sem gert var, í það minnsta reynir maður að gera sem minnst úr hlutunum eða réttlæta sjálfan sig.
Í samfélagi sem gefur ekki sveigjanleika í mannleg mistök og kjánaskap, þá setjum við upp flotta og fullkomna grímu til að sannfæra allt og alla um hversu gallalaus við erum. Við búum í samfélagi þar sem við þorum ekki að sýna okkar raunverulega sjálf og gera það sem okkur langar að gera af ótta við áliti annarra.
En af hverju erum við svona berskjölduð fyrir neikvæðu áliti annarra?
Af því að það erum við sjálf sem erum þetta neikvæða álit og við vitum alveg upp á okkur sökina í þeim efnum, þrátt góðan vilja, og verðum þar af leiðandi afskaplega viðkvæm fyrir því sjálf. Það erum við sjálf sem jöplum á nýjustu hneykslissögunum eins og sælgæti og það erum við sjálf sem höfum stöðugar skoðanir á útliti og hegðun annarra. Það er því kannski engin furða að fólk sé stöðugt að reyna að fegra sig í augum annarra, hvort sem það er með að setja upp hina fullkomnu grímu eða með því að notast við einhver öpp.
Kjaftasögur og útlitsdýrkandi lífsstílsvefir væru ekki til ef við værum ekki tilbúin að hlusta. Framboðið er einungis í samræmi við eftirspurn og það erum við sjálf sem veitum þessa eftispurn með því að vera stöðugt að taka þátt í gagnrýni og bjóða fram skoðunum á hegðun, útliti og framkomu samferðarmanna okkar.
Sannleikurinn er einfaldlega sá að við þorum oft ekki að horfast í augu við mannlegu brestina okkar, heimskupörin og mistökin sem við gerum - eins og allir hinir. Við þorum ekki að taka áhættuna og taka niður grímuna og treysta því að fólki líki við okkur eins og við raunverulega erum og þrátt fyrir öll heimskupörin. Þess í stað sýnum við heiminum tilgerðarlega, gallalausa og afar yfirborðskennda útgáfu af okkur sjálfum og gerum þær kröfur að fólk hagi sér óaðfinnanlega, geri aldrei mistök og verði aldrei á. Við hendum grjóthnullungum úr fallegum glerhúsum okkar í stórum stíl.
Ég dáist endalaust að þeim einstaklingum sem hafa kjarkinn og þorið til að kasta af sér grímunni, vera það sjálft og segja slitið við álit og skoðanir samfélagsins. Það er eitt stórkostlegasta frelsi sem hægt er að upplifa.
Við skrift þessa pistla hef ég öðlast ómældan styrk, kjark og þor til þess að losa mig sífellt meira undan skoðunum og áliti annarra. Það hefur gefið mér skemmtileg samtöl, mörg einlæg og falleg orð og tækifæri til að kynnast ótrúlega skemmtilegu og áhugaverðu fólki. Ég veit líka að þegar ég opinbera heimskupör mín og kjánaskap, fæ ég slíkt hið sama frá öðrum. Og það hefur fært mér eitt það dýrmætasta sem lífið getur veitt; raunveruleg og innileg samskipti og tækifæri til að kynnast öðrum sem og sjálfri mér enn betur.
Megi dagurinn í dag gefa þér sömu tækifæri, með þeirri von um að þú finnir kjarkinn þinn til að treysta fólkinu þínu fyrir sjálfum þér og einhverju af hausaruslinu þínu. Megi dagurinn í dag einnig gefa þér skilning og umburðarlyndi fyrir heimskupörum vina þinna og ættingja (og það er örugglega af nógu að taka) og að þú hlustir á sögu þeirra af forvitni í stað gagnrýni. Megi dagurinn í dag gefa þér að lokum fallegar, raunverulegar og innilegar samverustundir og vináttu við þína nánustu.
Með ást, gleði og taumlausri hamingju frá meingölluðu kjánapriki úr Vestmannaeyjum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2014 | 10:21
Ef ég bara þyrði...
Ég elska September. Sko plötuna hans Bergsveins. Og þó ég syngi kannski ekki vel, þá elska ég nú samt að syngja með. Af öllum lífs og sálar kröftum. Ég elska að setja Pink í botn og dansa með - eins og engin sé að horfa. En ég lít samt alltaf í kringum mig til að athuga hvort ég sjái einhvern. Þú veist, að horfa. Mér þykir nefnilega enn pínu vont að vera álitin kjánaleg.
Ég er dáldið feimin og er bara ekki alveg komin á þann stað að vera sama um hvað fólki finnst. Eina ástæðan fyrir því að ég fæ mér í glas er sú að það losar um hömlur og hleypir ófeimnu útgáfunni af sjálfri mér fram. En svona í seinni tíð er mig samt farið að gruna að fólk pæli minna í mér en ég ætla. Það gæti jafnvel, hugsanlega, kannski verið að fólk ætti bara nóg með sjálft sig og hafi jafnvel bara ekki tíma, orku eða nenning í að vera endalaust að spá í mér og því sem ég er að gera.
Við pælum nefnilega ofboðslega mikið í því hvað öðrum finnst, sérstaklega ef við teljum okkur ekki standa undir eigin væntingum. Við tökum flottustu og eftirtektarverðustu eiginleikana hjá öðrum og miðum okkur við það. Niðurstaðan er yfirleitt sú sama; hversu meingölluð og ótrúlega ófullkomin við erum. Allir þeir eiginleikar sem við dáumst að í fari annarra þú veist, hvað hún Sigga er ótrúlega falleg (með flottan kropp og hvað hún er einstaklega dugleg í ræktinni), hvað hann Jón er hrikalega rómantískur (hann er alltaf að gefa konunni sinni eitthvað og-veistu-bara-hvað, hann kveikir meira að segja á kertunum fyrir hana) og hvað hún Gunna er nú dugleg í eldhúsinu (ómægod, það er ekki nóg með það að hún eldi sjúklega góðan mat, þetta er allt saman glútleinlaust) þetta er einfaldlega eins og toppurinn á ísjakanum. Við viljum nefnilega svo gjarnan að fólk sjái bara sparihliðarnar okkar þær hliðar sem við viljum að aðrir dáist að og dásami okkur fyrir.
Við eigum öll svo marga dásamlega, skemmtilega og jafnvel eftirsóknaverða eiginleika. En við eigum líka allt hitt sem við reynum eftir fremsta megni að fela fyrir öðrum því við viljum ekki vera talin minniháttar ef það sést glitta í mannlegu brestina okkar. Í raunverulegu manneskjuna sem er bak við grímuna sem við setjum upp dags daglega til að öðlast aðdáun annara. Það eru samt allir með einhvern farangur úr fortíðinni. Eitthvað sem við hræðumst, skömmumst okkar fyrir eða erum óörugg með. Og það er einmitt þessi farangur sem kemur í veg fyrir að við þorum að fleygja öllum dásamlegu eiginleikunum upp á yfirborðið, láta reyna á hæfileikana og gera grín af göllunum okkar og öllum mannlegu brestunum.
Þessi ótti og óöryggi gera það að verkum að við verðum sár og reið þegar einhver gagnrýnir okkur. Og þá er nú miklu betra að vera bara í þægindakassanum þar þarf maður allavega ekkert að reyna neitt nýtt eða óttast hvað aðrir hafi um mann að segja.
En hvernig væri lífið öðruvísi ef maður væri ekki hræddur, óöruggur eða velta sér upp úr áliti annarra? Ég er búin að vera að pæla dáldið í þessu - hvernig mitt líf væri öðruvísi ef ég þyrði bara að láta vaða og hætta að spá í hvað ef. Og ég velti líka fyrir mér hverju ég fengi áorkað ef ég væri algerlega laus við óttann um höfnun eða við að mistakast.
Þetta er dáldið mögnuð spurning, því ég er farin að sjá það að möguleikarnir mínir eru nánast takmarkalausir. Ég er alltaf að sjá það betur og betur að það eina sem stoppar mig er óöryggið mitt og efinn um hver ég haldi nú eiginlega að ég sé, að ætla mér þetta eða hitt. En ég er líka farin að sjá það að fólk kann betur við mannlegu, dásamlegu og kjánalegu skvísuna sem ég er, heldur en fullkomnu og gallalausu útgáfuna sem ég reyndi svo lengi að verða. Það sjá flestir nokkuð auðveldlega í gegnum allt svoleiðis fals.
En ef ég væri hins vegar með fullt hús sjálfstrausts, væri fullgildur meðlimur í mér-er-alveg-sama-þótt-allir-séu-að-hlægja-að-mér félaginu og væri ekki hrædd við að vera álitin ófullkomin, þá væri ég löngu farin með rauðvínshandbókina mína til útgefanda (hún er nefnlega alveg hrikalega flott). Ég væri búin að senda einhverjum hjá Huffington Post bréf til að athuga af hverju í ósköpunum þeir væru ekki farnir að birta pistlana mína og ég væri líklega í öllum skólum að halda fyrirlestur um hvaða afleiðingar hausarusl og tilfinningadrasl hefur á líkamlega og andlega líðan. Og um það hversu dásamleg samskipti geta verið þegar við þorum að stíga út fyrir óttann. Ég þyrfti þá heldur ekki að fá mér bjór (eða tvo) til að losa um hömlur til að verða (kannski bara aðeins pínulítið) skemmtilegri. Ég gæfi mér þá einfaldlega leyfi til vera sá kjáni sem ég raunverulega er.
Ef ég hefði hugrekkið með mér í liði leyfði ég hjartanu oftar að ráða för. Þá færi ég á þessi deit sem mér hafa verið boðin. Ég myndi þá líka jafnvel, hugsanlega, kannski þora að verða hrifin aftur. Ég myndi hoppa af kæti, garga af gleði og syngja úr mér lungun næst þegar hundurinn færi með mig í göngu suður á eyju án þess að líta í kringum mig og athuga hvort það væri einhver að horfa. Og ég myndi klárlega gera mitt allra besta til að fá Bergsvein til að vera með tónleika á Háaloftinu.
Eins og ég sé þetta þá hef ég núna um tvennt að velja; að tækla óttann og segja skilið við ef-ég-bara-hefði hugsanir, eða ég get haldið áfram að leyfa óttanum að ráða för og setið uppi með fjandans eftirsjána.
Eins og spekingarnir segja, að þá eru það ekki hlutirnir sem við gerum sem við sjáum eftir, heldur það sem við gerðum ekki.
Svo, Beggi... hvað segir þú annars um tónleika í Eyjum í vetur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)